Fara á efnissvæði
Tvg Ship History 1

Sagan Okkar

20 ára afmæli 2016 - Fyrirtæki með rætur til ársins 1984

TVG-Zimsen átti 20 ára afmæli 2016. Fyrirtækið varð til við sameiningu Tollvörugeymslunnar hf. og Skipaafgreiðslu Jes Zimsen árið 1996 en sögu þessara fyrirtækja má rekja mun lengra aftur. Í tilefni afmælisins eru þessari sögu gerð skil á sérstökum söguvef.

Hvort sem rýnt er í yfir 100 ára sögu TVG-Zimsen eða horft á síðustu 20 ár má sjá að markmið... 

Tvg Ship History 1 Tvg Ship Sitory 2
Farþega- og vöruflutningaskip Sameinaða félagsins við hafnarbakka í Reykjavík árið 1917. (Ljósmyndasafn Rvk)

Bættur hagur með öflugri verslunarstétt í upphafi 20.aldar

Á síðari hluta 19. aldar var byrjað að ryðja braut nútímalegra verslunarhátta í Reykjavík. Siglingar jukust til landsins eftir 1870 en farmgjöld höfðu stórlækkað um allan heim vegna vélvæðingar og framfara í skipasmíðum. 

Áreiðanlegar siglingar til og frá landinu voru hin mesta nauðsyn fyrir framgang verslunarinnar. Stofnun Eimskipafélags Íslands 1914 var því mikilvægt framfaraskref.

Jes Zimsen

Jes Zimsen

Jes Zimsen (1877-1938) átti þátt í því að leggja grunn að breyttum og bættum atvinnuháttum og lífsskilyrðum í Reykjavík. Segja má að verslun hafi verið honum í blóð borin en faðir hans, Christian Zimsen, var kaupmaður allt sitt líf og stýrði bæði verslun í Hafnarfirði og síðar í Reykjavík.

Tvg History Image

Verslun Jes Zimsen

Jes Zimsen var fimmtán ára gamall þegar hann hóf nám í verslunarfræðum í Danmörku. Nítján ára gamall snéri hann heim og tók að miklu leyti við stjórn verslunar föður síns í Reykjavík. Hann skipti versluninni í tvær deildir. 

Annars vegar járnvöruverslun, sem seldi byggingavörur aðrar en timbur, og hins vegar nýlenduvöruverslun sem hann seldi 1931. Jes var einn af stofnendum Verzlunarráðs Íslands og sat í stjórn þess þangað til hann baðst undan endurkosningu ári áður en hann lést. 

Hann var einnig mikill styrktarmaður Verzlunarskóla Íslands.