Fara á efnissvæði
Tvg Desktop Hero 0Fac29a0f499ac509e77b3d2e73a1fe2c234ba3b

Einfaldari flutningar. Meiri yfirsýn.

Við sjáum um ferlið frá upphafi til enda, svo þú getir einbeitt þér að rekstrinum.

Frá lofti til sjávar

Við komum þínu til skila

Flugflutningar

Að flytja vörusendingar með flugi er hraðvirk leið og við bjóðum upp á hagkvæmar lausnir.

Viðburðaflutningar

Ef halda á tónleika eða taka upp kvikmynd getum við aðstoðað við flutninga til landsins.

Sjóflutningar

Lausavara eða heilgámar. Allur heimurinn í boði með traustum samstarfsaðilum.

Umboðsþjónusta fyrir skip

Boðið er upp á yfirgripsmikla umboðsþjónustu fyrir allar tegundir skipa.

Lifandi dýr

Lifandi mjaldrasystur, þær Litla-Grá og Litla-Hvít, voru fluttar frá sædýragarðinum Changfeng Ocean World í Kína til Klettsvíkur í Vestmannaeyjum með flugi, á landi og sjó. Undir ströngu eftirliti TVG-Zimsen ferðuðust þær systur í sérútbúnum vatnstönkum þar sem vel fór um þær á leiðinni.

Matvæli

Íbúar á austurströnd Grænlands höfðu ekki séð ferskvöru í átta mánuði þegar franskur ísbrjótur var sendur til þeirra með matvæli. Dótturfélag TVG-Zimsen, Gára, sá um lestun og alla þjónustu við ísbrjótinn sem hafði viðkomu í Reykjavík

Gróður

Það var óvenjulegur maídagur á skrifstofunni þegar beiðni barst frá eiganda lúxussnekkju, eða raunar hundi hans, um ferskt gras til að gera þarfir sínar í. Víðast hvar um landið voru tún varla þiðnuð á þeim tíma, en TVG-Zimsen leysti málið og afhenti grænar þökur fyrir hund í spreng

Menningararfur

Stafvæðing kvikmyndasafns RÚV fer þannig fram að TVG-Zimsen sér um að flytja fágætar spólur til Belgíu þar sem efnið er yfirfært á stafrænt form til framtíðarvarðveislu. Filmurnar eru flestar til í einu eintaki, sem kallar á skipulag og öryggi, auk þess sem gæta þarf að hita- og rakastigi.