Fara á efnissvæði
Tvg Page Banner

Flutningaþjónusta

Umsókn um reikningsviðskipti

Við tengjum Ísland við heiminn — í sjó, lofti og á landi. Frá 1894.

Við bjóðum upp á flutningslausnir um allan heim, hvort sem um er að ræða flug-, sjó- eða landflutninga.

Starfsmenn okkar greina þarfir þínar og finna hagkvæmustu leiðina fyrir hverja sendingu. Sem umboðsaðili fyrir CMA CGM á Íslandi bjóðum við upp á áreiðanlegar heilgámalausnir um allan heim. Með góðu samstarfi tryggjum við pláss í skipum og lausa gáma í lestunarhöfnum.

0Fac29a0f499ac509e77b3d2e73a1fe2c234ba3b tvg-packages

Flutningsþjónusta í boði

Akstursþjónusta

Bílafloti TVG

Akstursdeild TVG-Zimsen stýrir öllum akstri fyrir viðskiptavini með eigin bílaflota á höfuðborgarsvæðinu.

Í samstarfi við Flytjanda bjóðum við upp á öflugasta þjónustunetið í flutningum á Íslandi til um 80 áfangastaða um land allt.

TVG-Zimsen leggur áherslu á að tryggja viðskiptavinum sínum hagstæða og örugga flutninga til og frá lestunarstað hvar á landinu sem er.

Óskir þú eftir að bóka flutning eða fá tilboð skaltu senda fyrirspurn á netfang akstursdeildar og við komum sendingunni á áfangastað.

Flugflutningar

Innflutningur

TVG-Zimsen býður upp á flugsendingar hvaðanæva að úr heiminum og samstarfsaðilar okkar eru sérvaldir til að tryggja hámarksþjónustu alla leið.

Hvort sem um er að ræða Kaupmannahöfn eða Lima þá býður TVG-Zimsen upp á lausnirnar.

Hafðu samband við þjónustufulltrúa okkar í síma 5 600 777 eða á netfang þjónustudeildar og við finnum þær lausnir sem henta þér best.

Útflutningur

Þjónustufulltrúar okkar í útflutningsdeild sjá um að sækja vöru til útflutnings, frágang skjala, bókanir, endursendingar og umhleðslusendingar (transit), auk þess að veita með ánægju ráðgjöf um hvers kyns útflutning, í flugi, á sjó og á landi.

Þjónustufulltrúar okkar finna út hagkvæmustu flutningsleiðina fyrir vöruna þína og gera tilboð í flutning samkvæmt því.

Hafðu samband við okkur í síma 5 600 943 eða sendu fyrirspurn á netfang útflutningsdeildar.

Sjóflutningar

TVG-Zimsen býður upp á sjófrakt fyrir inn- og útflutning og nýtir sér net samstarfsaðila svo for- og áframflutningur er í boði um allan heim.

Innflutningur

Sjódeild TVG-Zimsen býður viðskiptavinum sínum upp á vikulegar siglingar frá Evrópu og Norður Ameríku.

Við getum boðið eftirfarandi lestunarhafnir í beinum siglingum til Íslands:

Evrópa

  • Rotterdam, Holland
  • Bremerhaven, Þýskaland
  • Immingham, England
  • Aarhus, Danmörk
  • Helsingborg, Svíþjóð
  • Fredrikstad, Noregur
  • Gdynia, Pólland
  • Þórshöfn, Færeyjar

Norður Ameríka

  • Portland, Maine
  • Halifax, Kanada
  • Argentia, Nýfundnaland
  • St. Anthony, Nýfundnaland

Auk þess eigum við góða samstarfsaðila í Mið-Austurlöndum sem og í Austurlöndum fjær.

Hafðu samband við þjónustufulltrúa okkar í síma 5 600 777 eða á netfang þjónustudeildar og við finnum þær lausnir sem henta þér best.

CMA-CGM heilgámaþjónusta

CMA-CGM er eitt stærsta og öflugasta skipafélag í heimi. TVG-Zimsen er umboðsaðili fyrir CMA-CGM á Íslandi og því getum við boðið alhliða heilgámalausnir um allan heim með hagkvæmum og öruggum hætti:

  • Innflutningur
  • Útflutningur
  • Crosstrade (flutningur utan Íslands)

Með góðu samstarfi tryggjum við pláss í skipum og lausa gáma í lestunarhöfnum um víða veröld.

Viðskiptavinir TVG-Zimsen geta því ávallt treyst á skjóta og örugga flutninga á vörum til og frá Asíu, Afríku, Ástralíu, Kanada, Norður-Ameríku og Suður-Ameríku.

Hafðu samband við sölumenn okkar fyrir CMA-CGM heilgáma og saman finnum við réttu lausnina.

Smelltu hér ef þú vilt rekja CMA-CGM gám.

Útflutningur

Þjónustufulltrúar okkar í útflutningsdeild sjá um að sækja vöru til útflutnings, frágang skjala, bókanir, endursendingar og umhleðslusendingar (transit), auk þess að veita með ánægju ráðgjöf um hvers kyns útflutning, í flugi, á sjó og á landi.

Þjónustufulltrúar okkar finna út hagkvæmustu flutningsleiðina fyrir vöruna þína og gera tilboð í flutning samkvæmt því.

Hafðu samband við okkur í síma 5 600 943 eða sendu fyrirspurn á netfang útflutningsdeildar.

Tollskjalagerð

Margra ára reynsla

Starfsfólk TVG-Zimsen er með margra ára reynslu í tollskjalagerð og tekur að sér alla þá þjónustu sem snýr að tollafgreiðslu vörusendinga til landsins. Boðið er upp á tollflokkun, gerð tollskýrslna, innlausn úr tolli og heimkeyrslu.

Fylgiskjöl sem þarf að leggja fram með tollskýrslu eru þessi helst:

  • Farmbréf „Original Bill of Lading“
  • Vörureikningur
  • Pökkunarlisti
  • Reikningur fyrir flutningsgjöld
  • EUR-skírteini eða EUR-áritun ef um er að ræða vöru frá EFTA eða ESB-löndum

Senda beiðni um tollskýrslugerð hér.
Senda beiðni um útflutningsskýrslu hér.

Hér að neðan getur þú opnað rafrænt umboð um skuldfærslu á aðflutningsgjöldum með rafrænum skilríkjum í síma eða kort.

Ef undirritað umboð er ekki fyrir hendi þarf að greiða aðflutningsgjöld fyrirfram.

Opna umboð fyrir skuldfærsluheimild

Vöruhýsing

Vöruhótel - Sundahöfn

Sundahöfn í Reykjavík er stærsta vöruhöfn á Íslandi en þar er miðstöð vörumóttöku og vöruafgreiðslu TVG-Zimsen á höfuðborgarsvæðinu.

Í Vöruhótelinu ehf. er boðið upp á alhliða vöruhúsa- og birgðahaldsþjónustu og þar starfar fólk með sérþekkingu á flutningsmálum sem veitir með ánægju upplýsingar um allt sem snýr að flutningum.

Boðið er upp á hvers kyns birgðahaldsþjónustu, bæði fyrir almenna vöru og sérhæfðan varning. Um er að ræða bæði tollafgreidda vöru og vöru sem ekki hefur verið tollafgreidd.

Vöruhótelið annast geymsluþjónustu fyrir TVG-Zimsen á höfuðborgarsvæðinu en þar er viðskiptavinum boðið að geyma vörur við bestu skilyrði.

Í vöruhúsinu er hitastig um 14°C, sem er kjörhiti fyrir flestar tegundir þurrvöru. Auk þess er boðið upp á geymslu á kæli- og frystivöru og geymslu á vöktuðu og afgirtu útisvæði sé þess óskað.

Þjónustumiðstöð Vöruhótelsins er á Sundabakka 2, Reykjavík.

Nánari upplýsingar eru veittar í gegnum netfang þjónustudeildar eða í síma 5 600 777 en einnig er hægt að fá upplýsingar hjá Vöruhótelinu í síma 5 122 100.

Þjónusta við netverslun

Við tengjum þig við netverslanir um allan heim

Pakkaþjónusta TVG-Zimsen á við um sendingar netverslana og/eða almennar sendingar í dreifingu víðsvegar um landið, hvort heldur sem er á landsbyggðinni með stærsta flutninganeti landsins eða innan höfuðborgarsvæðisins.

Hægt er að velja þá afhendingarmöguleika sem henta hverjum og einum. Við bjóðum upp á heimkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu milli kl. 16-22 á kvöldin en einnig er hægt að fá pakka afhenta í pakkabox eða á pakkastöðvum víðsvegar um land allt. Sá möguleiki býður upp á lengri opnunartíma og allt að sólarhringsopnun í pakkaboxum.

Hægt er að hafa samband við okkur í síma 560-0750 eða í tölvupósti netverslun@tvg.is.

Rekja sendingu

Hægt er að rekja allar sendingar frá TEMU, ASOS, JDS og Next í gegnum hlekkinn hér að neðan:

Rekja sendingu hér