TVG-Zimsen býður upp á sjófrakt fyrir inn- og útflutning og nýtir sér net samstarfsaðila svo for- og áframflutningur er í boði um allan heim.
Sjódeild TVG-Zimsen býður viðskiptavinum sínum upp á vikulegar siglingar frá Evrópu og tvisvar til þrisvar í mánuði frá Norður Ameríku. Við getum boðið eftirfarandi lestunarhafnir í beinum siglingum til Íslands:
Auk þess eigum við góða samstarfsaðila í Mið-Austurlöndum sem og í Austurlöndum fjær. Hafðu samband við þjónustufulltrúa okkar í síma 5 600 777 eða á netfang þjónustudeildar og við finnum þær lausnir sem henta þér best.
CMA-CGM er eitt stærsta og öflugasta skipafélag í heimi. TVG-Zimsen er umboðsaðili fyrir CMA-CGM á Íslandi og því getum við boðið alhliða heilgámalausnir um allan heim með hagkvæmum og öruggum hætti:
Með góðu samstarfi tryggjum við pláss í skipum og lausa gáma í lestunarhöfnum um víða veröld. Viðskiptavinir TVG-Zimsen geta því ávallt treyst á skjóta og örugga flutninga á vörum til og frá Asíu, Afríku, Ástralíu, Kanada, Norður-Ameríku og Suður-Ameríku. Hafðu samband við sölumenn okkar fyrir CMA-CGM heilgáma og saman finnum við réttu lausnina. Smelltu hér ef þú vilt rekja CMA-CGM gám.
Þjónustufulltrúar okkar í útflutningsdeild sjá um að sækja vöru til útflutnings, frágang skjala, bókanir, endursendingar og umhleðslusendingar (transit), auk þess að veita með ánægju ráðgjöf um hvers kyns útflutning, í flugi, á sjó og á landi. Þjónustufulltrúar okkar finna út hagkvæmustu flutningsleiðina fyrir vöruna þína og gera tilboð í flutning samkvæmt því. Hafðu samband við okkur í síma 5 600 715 eða sendu fyrirspurn á netfang útflutningsdeildar.