Veruleg aukning hefur verið á komum farþegaskipa til Reykjavíkur í sumar. Algengt er að farþegar komi með flugi til Íslands, fari hring um landið með skipi og fljúgi síðan heim. Stoppa svo jafnvel á Íslandi nokkra daga fyrir og eftir hringferðina. Með þessu dreifast ferðamenn betur um allt land og styrkja innviði í smærri byggðum. Skagfirðingar sáu fyrstu komu farþegaskips til Sauðárkróks í 40 ár í sumar. Þegar skipið Hanseatic Nature kom þangað í júlí með 180 ferðamenn um borð. Gára er m.a. umboðsaðili skipanna sem koma norður í sumar og starfsfólk okkar vann með hafnaryfirvöldum við kynningu á Króknum sem nýjum áfangastað.
Sérverkefnadeild TVG-Zimsen hefur í gegnum árin unnið náið með erlendum vísindastofnunum, háskólum og opinberum aðilum sem stunda ýmsar rannsóknir og prófanir á búnaði á Íslandi, á sjó og landi. Eitt af þessum verkefnum var flutningur á búnaði frá Kanada og Bandaríkjunum til Íslands og koma 20 feta gámi inn á miðhálendi Íslands við Holuhraun, þar sem hópur vísindamanna er nú staddur til að prófa farartæki og flygildi sem ætluð eru til nota á plánetunni Mars. Eins og gefur að skilja þá getur verið flókið að fara með svo stór tæki inn á hálendið yfir óbrúaðar ár og illfæra vegi fyrir þung tæki. Með hjálp góðra manna og góðs undirbúnings tókst sérverkefnadeild TVG-Zimsen að koma gámnum á áfangastað á tveim dögum.